Deutsch
Svenska
Dansk
English
Íslenska
 

Bloggið

Flugfélög geta líka bloggað.

Ameríka allan ársins hring

Beint flug til New York allt árið um kring.

Smá söguleg upprifjun, gott fólk:

Það var einu sinni Íslendingur sem hét Leifur og hann fann Ameríku.

Hann var kallaður Leifur heppni en náði samt einhvern veginn að týna Ameríku aftur (góða heppnin það), og einhver Ítali fann hana síðan upp á nýtt.

Við ætlum ekki að gera sömu mistök og Leifur og höfum því áveðið að halda áfram flugi til New York í allan vetur, enda tóm vitleysa að týna einhverju sem við erum nýbúin að finna, auk þess sem flugið okkar til New York í sumar hefur fengið svona líka ljómandi góðar viðtökur.

Til 1. nóvember nk. verður sem sagt flogið til New York Newark flugvallar fjóra daga í viku, frá mánudegi til fimmtudags, en eftir það verða flugdagarnir þrír á viku, mánudagar, miðvikudagar og föstudagar.

Stefnan er líka að halda verðinu innan skynsamlegra marka fyrir þá sem vilja halda í víking vestur — frá 24.900 kr. aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum.

Iceland Express — fyrir Íslendinga sem vilja finna Ameríku.


Bloggað 20. júlí 2010, kl. 13:05


Bóka flug

Leita að flugi

Veldu dagsetningu
Breyta dagsetningu
Iceland Express on Facebook


Viltu segja vini frá þessari síðu?

Senda skilaboð á vin

Hér getur þú sent þessa síðu
ásamt skilaboðum á vin.