Geta allir valið það sæti sem þeim sýnist?
Ekki alveg. Vegna öryggisráðstafana geta sæti við neyðarútganga, sem hafa meira fótarými, eingöngu verið bókuð fyrir einstaklinga, 14 ára eða eldri, með fulla líkamsgetu og eru ekki að ferðast með ungabarni.
Ef farþegi er til dæmis barnshafandi, þjáist af offitu eða er í gifsi, mun viðkomandi verða færður í annað sæti.
Ef farþegi sem á valið sæti uppfyllir ekki öryggiskröfur Iceland Express má hann eiga von á því að vera færður um sæti án endurgreiðslu eða skaðabóta.
Í einstaka tilfellum getur Iceland Express þurft að breyta fyrirfram völdu sætisnúmeri farþega. Þetta er einungis gert þegar nota þarf vélar með aðra sætaskipan en upprunalega og til að tryggja að farþegi fái það aukna rými sem sóst var eftir.




