Deutsch
Svenska
Dansk
English
Íslenska
 

Get ég flutt gæludýr með Iceland Express

Ath. Iceland Express býður eingöngu upp á flutning á hundum og köttum. Allur flutningur á gæludýrum til/frá Bretlandi er óheimill.

Hægt er að flytja hunda og ketti með Iceland Express en athugaðu að allur slíkur flutningur er háður reglum sem settar eru af yfirvöldum í hverju landi um sig til að hindra útbreiðslu smitsjúkdóma.

Ef þú vilt flytja gæludýr frá Íslandi þá viljum við benda þér á að kynna þér vel reglur um útflutning dýra á vef Matvælastofnunnar. Ef þú hyggst hins vegar flytja gæludýr til Íslands, er rétt að þú lesir vandlega yfir reglur um innflutning dýra sem einnig er að finna á vefsíðu Matvælastofnunnar.
Það er afar mikilvægt að þú fylgir þessum reglum að öllu leyti til að tryggja hnökralausan flutning fyrir gæludýrið þitt.

Ef þú hyggst flytja gæludýr með Iceland Express, verður þú að bóka pláss fyrir það í farangursrými. Kostnaður vegna slíkrar bókunar er 1.500 kr. (€11, £8, DKK 85, SEK 95) á hvert kíló, algerlega óháð öðrum farangursheimildum farþega. Vinsamlega athugið að gjaldið er innheimt skv. gjaldmiðli brottfararstaðar.

Við innritun þarftu að afhenda öll nauðsynleg leyfi fyrir flutningnum skv. fyrrnefndum reglum. Auk þess þarf að flytja gæludýrið í traustu búri sem auðvelt er að meðhöndla og sótthreinsa (búr úr timbri eru ekki leyfð). Hámarksstærð á búri er 100*80*80 sm. Búrið verður að hafa góða loftun og op þarf að vera á búrinu svo dýrið geti séð út, án þess þó að það geti komið loppu eða trýni útum opið.

Búrið þarf að öðru leyti að upfylla öll skilyrði um dýravernd, vera sótthreinsað, vatnshelt, hreint og þrifalegt, nógu stórt svo að dýrinu líði vel meðan á flutningi stendur og með nægjanlega mikið af vatni og næringu til að endast dýrinu í flutningnum.

Á áfangastað þarf að afhenda öll tilskyld gögn í samræmi við þarlendar reglugerðir. Athugaðu að Iceland Express tekur enga ábyrgð á því ef gæludýri er hafnað um landvistarleyfi eða ef vandamál koma upp vegna flutnings gæludýrs til þriðja lands. Eigandi dýrsins ber jafnframt fulla ábyrgð ef dýrið veikist, slasast eða drepst í flutningum.

Einungis er leyfilegt að flytja fjögur gæludýr með sama flugi og því getur komið til þess að hafna þarf beiðni um slíkan flutning. Aðeins má flytja eitt dýr í hverju búri.

Ekki er leyfilegt að hafa gæludýr meðferðis í farþegarými. Einu undantekningarnar sem gerðar eru á þessu eiga við um sérþjálfaða aðstoðarhunda sem fylgja blindum og/eða fötluðum farþegum. Í þeim tilvikum eiga reglur um búr, þyngdartakmarkanir og aukakostnað ekki við.



Tengdar spurningar:

Get ég flutt gæludýr með Iceland Express til Englands?