Hvernig virkar forfallatrygging?
Forfallatrygging Iceland Express tryggir þér fulla endurgreiðslu fargjaldsins þíns (að frátöldum breytingagjöldum, bókunargjöldum og forfallatryggingarkostnaði) ef öllum eftirfarandi skilyrðum er mætt:
- Þú og/eða aðrir farþegar í bókun þinni geta ekki ferðast af heilsufarsástæðum, þ.e.a.s. farþeginn, maki hans, börn eða foreldrar, eru svo alvarlega veik að viðkomandi óskar ekki eftir að ferðast.
- Framvísað sé læknisvottorði vegna þessa innan sjö daga frá brottför hins bókaða flugs.
Aðeins er hægt að kaupa forfallatryggingu þegar þú gerir bókunina.
Til að óska eftir endurgreiðslu vegna forfallatryggingar skaltu faxa til okkar eintaki af læknisvottorðinu ásamt bókunarnúmerinu þínu innan sjö daga frá brottför flugsins sem þú komst ekki í. Faxnúmerið okkar er +354 5500601.




