Deutsch
Svenska
Dansk
English
Íslenska
 

Hvað má ég ferðast með mikið af farangri?

Athugið: Farþegar sem eiga bókað flug fyrir 1. júní 2011 og bókuðu viðkomandi flug fyrir 1. september 2010, hafa farangursheimild í samræmi við eldri reglur. Smelltu hér til að kynna þér eldri reglurnar.

Almenn farangursheimild

Innritaður farangur: Hver farþegi má innrita, sér að kostnaðarlausu, eina tösku með að hámarki 20 kg. af farangri. Athugið að ekki er heimilt að færa farangursheimild á milli bókana. Hægt er að kaupa heimild fyrir auka tösku eða töskur, samkvæmt verðskrá. Sjá verð fyrir auka töskuheimild (opnast í nýjum glugga). Við bendum á að það er hagkvæmast að bóka þessa heimild um leið og flugið er bókað, þar sem þá býðst allt að 20% afsláttur af uppgefnu verði.

Yfirvigt: Ef einhver taska er þyngri en sem nemur 20 kg., er innheimt sérstakt yfirvigtargjald fyrir þá tösku. Gjaldið er ein upphæð óháð umframþyngd. Sjá gjald fyrir yfirvigt (opnast í nýjum glugga). Hámarksþyngd á eina tösku getur þó mest verið 32 kg. og áskiljum okkur við rétt til að hafna flutningi á töskum sem eru umfram þá þyngd.

Handfarangur: Þú mátt taka með þér um borð eina einingu handfarangurs, ekki stærri en 55x35x25cm. Að auki máttu taka með þér handtösku, frakka eða kápu, fartölvu, myndavél og poka með vörum úr fríhöfn. Heildarþyngd handfarangurs, að öllu þessu meðtöldu, má ekki vera umfram 10 kg. Athugaðu að sérstakar reglur gilda um vökva í handfarangri.

Ungabörn: Börn undir 2ja ára aldri fá ekki farangursheimild, nema þegar sæti hefur verið bókað fyrir þau.

Yfirstærðar farangur/Yfirvigt: Ef þú ferðast með farangur sem er þyngri en 32 kg og/eða stærri en 90x50x60 sm.(LxBxH), þarftu að merkja hann sérstaklega með töskumiða og setja hann á farangursband eða vagn fyrir yfirstærðar farangur.
Ef þú ferðast með farangur sem er þyngri en 50 kg og/eða stærri en 150x80x80 sm. (LxBxH), máttu ekki setja hann á yfirstærðarbandið, heldur á sérstakan vagn sem staðsettur er við bandið.
Sömu reglur gilda um sérstakan farangur svo sem skíði, golfsett, barnavagna, reiðhjól og annað slíkt.

Hafðu í huga að við getum undir vissum kringumstæðum átt erfitt með flutning á slíkum farangri og áskiljum okkur því rétt til að hafna flutningi á farangri í yfirstærð ef þyngd hans er umfram 32 kg eða ef heildarþyngd innritaðs farangurs þíns er yfir 50 kg.

Íþróttabúnaður og annar sérfarangur: Flutningur á hlutum eins og golfsettum, reiðhjólum, seglbrettum, svifdrekum og skíðum kostar 3.500 kr per stykki á hvern fluglegg (hvort sem þyngd þeirra er innan heildarfarangursheimildar eða ekki). Athugið að gjald fyrir yfirvigt er innheimt í gjaldmiðli brottfararstaðar hverju sinni. Sjá verð fyrir sérfarangur í öðrum gjaldmiðlum (opnast í nýjum glugga).

Aukabúnaður má vega allt að 12 kg og kemur til viðbótar við venjulega farangursheimild, þ.e. þú getur einnig ferðast með venjulegan farangur, í samræmi við farangursheimild þína. Iceland Express áskilur sér hins vegar rétt til að hafna flutningi á ofangreindum aukafarangri ef þyngd hlutar er umfram 12 kg.
Reiðhjólum verður að pakka vandlega inn í plast eða harðpappa þannig að handföng séu samsíða hjólinu, fótstig fjarlægð og loft tekið úr dekkjum.


Vantar þig aðstoð?

Stél á þotu merktri Iceland ExpressHér í hjálpinni höfum við reynt að svara öllum mögulegum spurningum sem viðskiptavinir okkar kunna að hafa.

Veldu einn af flokkunum í valmyndinni hérna til vinstri eða finndu spurninguna þína í listanum.

Ef þú finnur svarið ekki hér hafðu þá gjarnan samband við okkur með tölvupósti eða í síma.