Innritaður farangur: Hver farþegi má innrita, sér að kostnaðarlausu, allt að 30 kg. af farangri, óháð töskufjölda. Athugið að ekki er heimilt að færa farangursheimild á milli bókana.
Yfirvigt: Farangur umfram farangursheimild kostar 1.500 kr. per kg. á hverjum fluglegg. Athugið að gjald fyrir yfirvigt er innheimt í gjaldmiðli brottfararstaðar hverju sinni. Sjá verð fyrir yfirvigt í öðrum gjaldmiðlum (opnast í nýjum glugga).
Handfarangur: Þú mátt taka með þér um borð eina einingu handfarangurs, ekki stærri en 55x35x25cm. Að auki máttu taka með þér handtösku, frakka eða kápu, fartölvu, myndavél og poka með vörum úr fríhöfn. Heildarþyngd handfarangurs, að öllu þessu meðtöldu, má ekki vera umfram 10 kg. Athugaðu að sérstakar reglur gilda um vökva í handfarangri.
Ungabörn: Börn undir 2ja ára aldri fá ekki farangursheimild, nema þegar sæti hefur verið bókað fyrir þau.

Hér í hjálpinni höfum við reynt að svara öllum mögulegum spurningum sem viðskiptavinir okkar kunna að hafa.
Veldu einn af flokkunum í valmyndinni hérna til vinstri eða finndu spurninguna þína í listanum.
Ef þú finnur svarið ekki hér hafðu þá gjarnan samband við okkur með tölvupósti eða í síma.