Flugvöllurinn í Rotterdam er fremur lítill á evrópskan mælikvarða — u.þ.b. 1,2 milljónir farþega fara um hann ár hvert sem er litlu minna en árlegur farþegafjöldi um Leifsstöð.
Innritun í flug Iceland Express
Upplýsingar koma fljótlega
Hægt er að velja um nokkrar leiðir með rútu til og frá flugvellinum. Leiðir 33, 41 og 50 ganga á milli Rotterdamflugvallar og miðbæjarins. Leið B12 er svo sérsniðin fyrir þá sem þurfa að ná flugi mjög snemma morguns.
Leigubílar eru til staðar fyrir framan brottfarar- og komusvæði. Leigubílarnir taka öll helstu greiðslukort og bílferðin inn til miðborgarinnar kostar um það bil €20-30.
Bílastæði
Bílastæði eru öll í göngufæri við flugstöðina. Verð fyrir að geyma bíl er breytilegt eftir þeim tíma sem geymt er, en sem dæmi þá er vikugjaldið €55.