Best er að fara á Aðalbrautarstöðina í Basel, þaðan sem hægt er að ferðast með lestum innan Sviss og auk þess til Frakklands og Þýskalands. Rútur ganga frá flugvellinum til brautarstöðvarinnar — leið 50.
Leigubílar eru jafnan til staðar fyrir utan flugstöðina. Bílferð frá flugvellinum til Mulhouse kostar u.þ.b. 35 til 50 evrur. Bílferð til Freiburg kostar u.þ.b. 110 evrur.
Bílastæði
Staðsetning bílastæða fer eftir því hvaðan er komið að flugvellinum. Gjaldtaka fyrir bílastæði er líka breytileg, þó er alltaf nauðsynlegt að greiða með kreditkorti.
Þú mátt taka með þér allt að 20 kg af innrituðum farangri (30 kg fyrir öll flug til/frá Bandaríkjunum og Kanada) og 10 kg af handfarangri. Kílóið af yfirvigt kostar 1.500 kr. Sérstakar reglur eru um flutning á sérfarangri eins og golfsettum, reiðhjólum og fleira.