Hvort Al Gore og skoðanabræður hans hafa rétt fyrir sér um hlýnandi loftslag skal ósagt látið, en engum blöðum er um það að fletta að sumrin í Ósló verða heitari.
Fyrir þá sem vilja flýja molluna og kæla sig, er sundsprettur í Óslóarfirðinum góður kostur. Ströndin Huk, á Bygdøy er tilvalin til þessa. Ásamt góðri staðsetningu er mikill kostur hve auðvelt er yfirleitt að finna þar pláss fyrir handklæðið á sandinum.
Teprur og púritanar verða þó að leita annað, þar sem Huk skartar helstu nektarströnd Óslóar. Þar eru allir velkomnir og engum skylt að striplast umfram það sem hann treystir sér til fyrir siða sakir.
Vert er þó að minna á að óhjákvæmilegur fylgifiskur þess að sleikja sólina á þess háttar strönd eru menn með sólgleraugu sem vilja njóta kroppasýningarinnar án þess að vekja á sér of mikla athygli fyrir augngoturnar. Það má hlæja að þeim.
Fyrsti pilsinn og pillaðar rækjur
Eins og aðrir, sem dæmdir eru til vistar á norðurhjara veraldar, bíða Óslóarbúar sumarsins með óþreyju.
Ómissandi athöfn í sumarfagnaði margra Norðmanna er að fá sér bjór á útiveitingastað og panta sér stóra skál af rækjum með. Rækjurnar eru bornar fram í skelinni, með kryddi, majónesi og sítrónu, og er hluti gleðinnar að vinna fyrir hverri rækju með því að afhausa og pilla hana eftir kúnstarinnar reglum.
Eins og við er að búast eru ófáir nautnaseggirnir sem drekka þennan fyrsta bjór – sommerpils – mörgum sinnum og tæta í gegnum nokkra rækjuskammta áður en þeir líta svo á að fyrsti bjórinn hafi í raun verið fulldrukkinn.
Aker brygge í miðbæ Oslóar er einn eftirlætisvettvangur sumarblótsins, enda fjölmargir staðir til að velja um í fallegu umhverfi. Pramminn Lekter'n er frægur fyrir mikið fjör og lifandi músík og dregur til sín ólíklegustu blöndu af bissnessfólki og stúdentum og alls þar á milli.
Sankthanshaugen, í nágrenni hins sögufræga Bislet-leikvangs, er annar vinsæll staður með ágætu útsýni yfir borgina og huggulegt að sitja þar, jafnvel undir teppi við gashitara þegar veðurguðirnir ganga ekki í takt við sólskinsskap gesta og veitingastaðaeigenda.
Í setrinu er hægt að nálgast ýmsan fróðleik um alla þá sem hlotið hafa friðarverðlaun Nóbels, allt frá 1901 til 2006, auk þess sem þemasýningar um stríð, frið og allt þar á milli, eru í gangi árið um kring.
Við vitum ekki af hverju Norðmenn eru að ota fram sænska uppfinningamanninn og föður dýnamítsins, Alfred Nobel, en trúum að þetta sé allt gert af góðum hug. Bobbysocks Eurovisionsetrið í Reykjavík, einhver?